Spilavin á Hótel Hvolsvelli 2027

Image
This Game is Broken og Hilmar
This Game is Broken hlaðvarpið voru gestir Spilavinar 2026

Spilavin á Hótel Hvolsvelli verður haldin dagana 22.-25. apríl 2027!!!

Spilavinin er spilaviðburður þar sem þátttakendur koma saman til að spila borðspil heila helgi (eða hluta úr henni). Þátttakendur eru hvattir til þess að koma með spil sem þeir vilja koma á borðið með sér en auk þess verður veglegt safn á staðnum sem hægt er að ganga í.

Eins og í fyrra getum við nú byrjað á fimmtudeginum 22. apríl, sem er einmitt sumardagurinn fyrsti og því almennur frídagur. Við erum að meira að segja með helling af herbergjum laus á miðvikudagskvöld ef þið viljið mæta miklu fyrr! Safnið kemur austur um kvöldmatarleytið svo það er í raun ekkert sem stoppar!

Image
Safnið komið upp
Spilasafnið 2026

Aðgangseyrir

Þar sem við erum nú búin að lengja í hátíðinni bjóðum við upp á fjórar tegundir af miðum:

  • Eins dags passi: 8000kr
  • Tveggja daga passi: 11.000kr
  • Þriggja daga passi: 13.000kr
  • Fjögurra daga passi: 15.000kr

Innifalið í aðgangseyrinum er aðgangur að hátíðinni, aðgengi að yfir 300 spilum í spilasafninu, gosdrykkir, snakk og sælgæti yfir daginn. Ekki er leyfilegt að koma með áfengi í almenn rými en hótelið býður okkur 20% afslátt á barnum!

Miðar fást EKKI endurgreiddir eftir 1.janúar 2027 en hægt er að óska eftir nafnabreytingu á miðanum (þú getur selt miðann til annars aðila).

Image
Einstaklingsherbergi

Gisting og matur

Við höfum unnið mjög náið með hótelinu til að gera verðskránna einfaldari og skýrari en áður. Verð fyrir gistingu og mat er hægt að finna hér.

Innifalið í gistingu er morgunverðarhlaðborð. Einnig stendur til boða hádegis- og kvöldverðarhlaðborð. Í hádeginu er boðið upp á léttan málsverð eða súpu og brauð. Á kvöldverðarhlaðborðinu munu kokkarnir galdra fram ýmisa veislurétti eins og gestir fyrri ára kannast vel við. Allt sérfæði (fæðuóþol o.þ.h.) verður afgreitt beint úr eldhúsinu til að koma í veg fyrir smit.

Kokkarnir á hótelinu eru undirbúnir fyrir allar séróskir vegna fæðuóþols þannig að hafið samband við okkur ef eitthvað er. 

 

Image
Iðandi af gleði

Spilasafn

Þó svo að margir taki með sér eigin spil á hátíðina stærum við okkur af sístækkandi spilasafni sem við bjóðum upp á. Í ár ætlum við að taka með okkur 300 spil, í það minnsta! Eins og sjá má á myndinni hér til hliðar eru mörg spilanna í "Big box" útgáfum og oftar en ekki er búið að skipta út spilahlutunum fyrir fallegri hluti.

Og í mörgum tilfellum eru spilamottur í stað spilaborða í boði

Image
Spilavin 2025 - Topp 5
Gestir okkar á Spilavin 2025

Sérstakir gestir

Við erum að leggja lokahönd á samninga við sérstaka gesti hátíðarinnar og getum því ekki látið neitt uppi um þá sem stendur. En við munum byrja að leka út upplýsingum um þá hér á síðunni og á Facebook síðu hátíðarinnar í lok nóvember, byrjun desember.