Spilavin á Hótel Hvolsvelli 2027

Image
This Game is Broken og Hilmar
This Game is Broken hlaðvarpið voru gestir Spilavinar 2026

Takið helgina frá: Spilavin á Hótel Hvolsvelli verður haldin dagana 22.-25. apríl 2007!!!

Rykið er rétt aðeins að setjast eftir frábæra Spilavin á Hótel Hvolsvelli dagana 23.-26. apríl 2026. 

Í fyrsta sinn prófuðum við að lengja aðeins í viðburðinum og í staðinn fyrir að byrja á hádegi á föstudegi byrjuðum við sólarhring fyrr. Það er mögulegt þar sem fimmtudagurinn kom upp á sumardaginn fyrsta.

Það heppnaðist svona einstaklega vel og nýttu flestir tækifærið að koma og spila einum degi lengur en síðast. Og því ætlum við að tengja sumardaginn fyrsta við skemmtilegustu spilahelgi landsins! Spilavin mun því alltaf verða helgina sem sumardagurinn fyrsti ber upp á og því er hægt að gera áætlanir mörg ár fram í tímann!

Fylgist með hér á síðunni, við munum bæta inn frekari upplýsingum um hátíðina þegar fer að hausta.

Hilmar & Caroline