Spilavin á Hótel Hvolsvelli

Image
Spilavin 2025
Frá Spilavin 2025

Loksins er komin dagsetning á næstu Spilavin á Hótel Hvolsvelli, og verður hún helgina 23.-26. apríl 2026. 

Spilavinin er spilaviðburður þar sem þátttakendur koma saman til að spila borðspil heila helgi (eða hluta úr henni). Þátttakendur eru hvattir til þess að koma með spil sem þeir vilja koma á borðið með sér en auk þess verður veglegt safn á staðnum sem hægt er að ganga í.

Við náðum frábærum samningum við hótelið í ár og nú getum við byrjað á fimmtudeginum, sem einmitt er frídagur! Sumardagurinn frysti! 10 herbergi eru laus á fimmtudagsnótt, fyrstir koma, frystir fá.

Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og í ár. Hótelið mun bjóða upp á kvöldverðarhlaðborð bæði föstudags- og laugardagskvöld og léttan hádegismat (súpa og brauð) í hádeginu laugardaginn og sunnudaginn. 

Hægt er að panta gistingu í eina nótt, tvær eða þrjár, eða bara koma og spila og keyra svo heim á kvöldin, hvað sem hentar ykkur. Hægt er að velja um annars vegar herbergi og fullt fæði og hins vegar aðeins herbergi. 

Image
Spilavin 2025 - Topp 5
Frá Topp 5 Spil sem þú ættir ALDREI að spila um borð í flugvél

Aðgangseyrir

Aðgangseyrir er 10.000kr, hvort sem gist er eður ei. Innifalið í aðgangseyrinum eru gosdrykkir, snakk og sælgæti yfir daginn. Ekki er leyfilegt að koma með áfengi í almenn rými en hótelið býður okkur 20% afslátt á barnum!

Skráning fer fram með því að fylla út formið https://bit.ly/spilavin2026

Þú greiðir fyrir miðana með því að leggja inn á 0357-26-4204, kennitala 460226-0900. (Borðspilavinir ehf.) Hafðu nafnið þitt í skýringu.

Miðar fást EKKI endurgreiddir eftir 1.janúar 2026 en hægt er að óska eftir nafnabreytingu á miðanum (þú getur selt miðann til annars aðila).

Image
Hótel Hvolsvöllur - Double Room

Herbergi (pr. herbergi, pr. nótt, með morgunverði og sköttum)

Verðin í ár eru þau sömu og á síðustu Spilavin!

  • Eins manns herbergi: 15.900kr
  • Tveggja manna herbergi: 17.900kr
  • Þriggja manna herbergi:  21.900kr

Gefinn er 10% afsláttur ef pantaðar eru tvær eða þrjár nætur!

Ath: Gisting er greidd á staðnum, við komu, beint til hótelsins

Image
Hótel Hvolsvöllur - Desk

Gisting og fullt fæði (pr. einstakling, pr. nótt með sköttum)

  • Ein nótt: 13.900kr
  • Tvær nætur: 26.400kr
  • Þrjár nætur (aukanótt á fimmtudegi): 35.400kr (fæði ekki innifalið á fimmudagskvöldinu eða í hádeginu á föstudag)

Aukagjald, 6.000kr á nótt leggst á ef óskað er eftir einstaklingsherbergi.

Innifalið er morgunmatur, léttur hádegisverður og kvöldverðarhlaðborð (sjá hér fyrir neðan).

Ath: Gisting  og fæði er greidd á staðnum, við komu, beint til hótelsins. 

Image
Dave og Ilka Luza
Image
Brothers Murph
Image
Paula Deming
Image
Matthew Jude
Hlaðvarpsstjórnendur This Game is Broken

Sérstakir gestir - This Game is Broken hlaðvarpið

This Game is Broken er margverðlaunaður gamanþáttur í formi borðspila-panelþáttar, með Paulu Deming, The Brothers Murph, Dave Luza og Matthew Jude. Í meira en 8 ár og með milljónir niðurhala hefur TGiB haft það að markmiði að létta þér lífið aðeins, með því að hafa gaman og gera brandara um áhugamálið sem við öll eigum sameiginlegt og elskum.

Dave og Ilka Luza eru tvíeykið á bak við Luzapalooza, þar sem þau streyma borðspilum með tónlist, leikhúsi og orkumikilli þátttöku áhorfenda á Twitch. Dave er að sjálfsögðu hluti af This Game is Broken hópnum og þekktur fyrir að blása borðspilum lífi í brjóst með söngvum, sketsum og gleðilegri ringulreið. Ilka er þýsk leikkona og söngkona sem færir að borðinu hlýju, hjarta og leikhúslegt yfirbragð og hjálpar til við að skapa opið og hlýlegt samfélag þar sem fólk alls staðar að úr heiminum kemur saman í gegnum spilamennsku.

Matthew Jude stofnaði „This Game is Broken Podcast“ og hefur unnið með Watch it Played og Game Night Picks, meðal annarra YouTube-rása um borðspil, auk þess sem hann einbeitir sér nú að „YESLAND“, ferða- og ævintýra-YouTube-rás.

Nick og Mike mynda The Brothers Murph og elska að dreifa gleði borðspila með spilunar-myndböndum, topp-10 listum, umræðuþáttum og að sjálfsögðu This Game is Broken. Þeir eru gífurlega spenntir fyrir því að borðspil hafi bókstaflega farið með þá víða um heim, en Ísland er sannarlega staður á óskalistanum þeirra og þeir geta ekki beðið eftir að sjá þetta fallega land og fólkið sem hér býr.

Paula Deming er að sjálfsögðu 1/5 af This Game is Broken hópnum. Hún býr líka til borðspila-gamanseríuna Things Get Dicey, streymir borðspilum og tölvuleikjum á Twitch-rásinni sinni, fjallar um borðspil hjá Game Night Picks og spilar TTRPGs með rásum á borð við Good Time Society, Glass Cannon Network og Push the Roll.

Image
Samlokur á platta

Morgunverðar- og hádegishlaðborð

Morgunverðarhlaðborð er innifalið í verði gistingar, hvort sem tekin er bara gisting eða fullt fæði. 

Þau sem eru í fullu fæði hafa líka aðgang að léttu hádegisverðarhlaðborði með súpu, brauði ofl. Ef óskað er eftir að kaupa aðgang að hádegishlaðborðinu er verðið 1.900kr.

 

Image
Hlaðborð

Kvöldverðarhlaðborð

Á kvöldverðarhlaðborðinu mun valið standa á milli kjöts, fisks og/eða grænmetisrétts, og verður það mismunandi á milli daga. Allt sérfæði (fæðuóþol o.þ.h.) verður afgreitt beint úr eldhúsinu til að koma í veg fyrir smit. 

Kokkarnir á hótelinu eru undirbúnir fyrir allar séróskir vegna fæðuóþols þannig að hafið samband við okkur ef eitthvað er.

Verð fyrir kvöldverðarhlaðborð ef ekki er valið fullt fæði er 3.900kr.

Image
Spilasalurinn eftir uppsetningu

Spilasafn

Þó svo að margir taki með sér eigin spil á hátíðina stærum við okkur af sístækkandi spilasafni sem við bjóðum upp á. Í ár ætlum við að taka með okkur 250 spil, í það minnsta! Eins og sjá má á myndinni hér til hliðar eru mörg spilanna í "Big box" útgáfum og oftar en ekki er búið að skipta út spilahlutunum fyrir fallegri hluti.

Og í mörgum tilfellum eru spilamottur í stað spilaborða í boði ;-) 

Image
Notuð spil

Sölu- og skiptimarkaður

Í fyrra buðum við  upp á sérstaka hillu, aðskilda frá spilasafninu, þar sem notuð spil voru til sölu. Og við ætlum að endurtaka það í ár. Þú kemur bara með spilið þitt, merkir það með verði og upplýsingum um hver þú ert (svo hægt sé að borga þér) og svo getur fólk skoðað úrvalið yfir hátíðina. 

Við höfum gert þetta nokkuð óformlega síðustu ár og það hefur alltaf verið talsverð hreyfing á spilum.

Image
Hótel Hvolsvöllur

Um hótelið

Hótel Hvolsvöllur er rótgróið fyrirtæki staðsett miðsvæðis í bænum Hvolsvelli í Rangárþingi Eystra. Hótelið var opnað árið 1984 og hefur síðan verið stækkað tvisvar, fyrst árið 1998 og árið 2007.

Með stækkun hótelsins árið 2007 bættust 26 herbergi við og í dag samanstendur hótelið af 66 herbergjum talsins. Þar af eru 22 þriggja manna, 32 tveggja manna og 8 eins manns herbergi. Það eru einnig 3 fjögurra manna fjölskylduherbergi, sem einnig virka sem superior herbergi.