Aftergame appið á Spilavin

Submitted by admin on
Image
Aftergame.app login
Innskráningargluggi Aftergame.app

Við hjá Borðspil.is höfum verið að fikta okkur áfram með Aftergame með góðum árangri. Svo góðum að við höfum ákveðið að nota það á Spilavin til að skipuleggja spil. En áður en við útskýrum það ætlum við aðeins að renna yfir hvernig appið virkar í grunninn. Hægt er að sækja það sem App í Google Store/App Store, en einnig er hægt að nota það sem vefsíðu í tölvu í gegnum slóðina aftergame.app

Image
Yfirlit yfir hópinn Borðspil.is
Yfirlit yfir Borðspil.is hópinn

Eftir að þú hefur stofnað reikning (það er alveg nóg að stofna ókeypis reikning) getur þú leitað að borðspil.is hópnum og skráð þig í hann. Skráning er opin.

Hópurinn er samfélag. Þar er hægt að búa til viðburði eins og Spilavin og BGG Topp 100 viðburðinn sem eru þar nú þegar, en einnig er hægt að skipuleggja einstaka spil. Og það er líka hægt að gera undir viðburðunum. 

Ef þú opnar Spilavin sérðu að það er nú þegar búið að setja inn nokkur spil sem eru skipulögð af þátttakendum. Hildur ætlar t.d. að kenna Three Sisters spilið kl 13 á föstudeginum og Tryggvi er búinn að skipuleggja nokkur spil líka.

Til að óska eftir sæti á hvaða spili sem er sem er í boði er nóg að ýta á "Claim Seat" takkann og ef það er ennþá sæti laust ertu komin með sæti. Stundum er líka biðlisti, þannig að ef þér tókst ekki að grípa sæti núna, þá er möguleiki að ef það losnar sæti að þá sért þú næst/ur!

Image
Nýtt spil - Aftergame
Svona skráir þú nýja spilun á spili sem þig langar að spila

Til að skipuleggja spil, hvaða spil sem er, þá ýtir þú á "+ New" takkann og leitar að spilinu. Leitin fer fram í BGG gagnagrunninum þannig að það getur verið hvaða spil sem er. Undir grúppunni sjálfri er hægt að sjá spilasöfn þeirra sem eru í henni með því að smella á Collection. Ef þú finnur spil í eigu einhvers, getur þú smellt á dagatalshnappinn og skipulagt spil. Athugið samt að sú spilun er almenn skráning og skráist því ekki undir neinum viðburði. 

Image
Skrá tegund spilunar - Aftergame
Hægt er að velja að spilið sé frumútgáfa og spilunin sé prófun, sem er frábært fyrir spilahönnuði

Hvaða leið sem þú notaðir til að velja spil til að skipuleggja, þá opnast gluggi með grunnupplýsingum sem þarf að fylla út. Þú þarft ekki að fylla út dagsetningu og tíma, og við mælum reyndar með, ef þú ert að plana að spila spil einhvers annars að þú sleppir því til að gefa eigandanum og öðrum færi til að sýna áhuga á spilinu fyrst. Frekar að setja uppástungur um spilastað og tíma í athugasemdir. Nema auðvitað að þig langi að spila spil á viðburði eins og Spilavin, þá er spilastaðurinn nokkuð augljós :-)  En aftur er gott að ekki endilega festa tíma og skipuleggja hann frekar í athugasemdaspjallinu.

Það eru nokkrar stillingar tengdar því hvernig spilunin er, hvort þú getir kennt og hvort spilarar þurfi að kunna spilið eða ekki. Sem dæmi gæti spilahönnuður skráð spil sem hann er með í prófunum undir "Playtest a prototype" þannig að allir viti hvað þeir eru að fara að gera. Einnig er hægt að biðja um að spilarar kunni grunnreglurnar og jafnvel að þeir séu með reynslu af spilinu, t.d. ef ætlunin er að spila spil eins og Twilight Imperium 4 og ætlunin er að nota viðbæturnar. 

Image
Game list - All lists
Image
Games
Image
New list
Image
Edit lists

"Minn listi"

Þú getur búið til þinn eigin lista af spilum sem þú ætlar að taka með á Spilavinina. Bæði verður þá auðveldara að sjá hvað aðrir eru að taka með, því það er kannski óþarfi að vera með mörg eintök af sama spilinu. 

Til þess að búa til þinn eigin lista, veldu Games úr aðalvalmyndinni, veldu svo All lists -> Edit Lists -> + New List.

Þegar það er komið er takki í neðra horninu til að bæta við spilum úr safninu þínu, gefið að þú sért með safnið á BGG og búin/n að flytja það inn og þú getur að meira að segja flutt inn allt safnið, þó svo að það sé ólíklegt að þú sért að taka allt safnið með þér ;-) 

Image
Add Games

Spilasafn bordspil.is og skipulagning spila úr safninu

Við hjá bordspil.is eigum yfir 1000 spil og meira en 1000 viðbætur við spil. Það er hellingur. Venjulega komum við með u.þ.b. 300 spil sem við höldum að þið hefðuð gaman af því að spila.

En nú ætlum við að auka á þjónustuna! Með því að skipuleggja spilun á einhverju spili úr safninu okkar getur þú verið örugg/ur/t um að spilið verði á staðnum. Veldu Game Library þegar þú ert inni í viðburðinum, veldu spil úr safninu og ýttu á dagatalsmerkið til að skipuleggja spilið. Nokkrum dögum fyrir Spilavin förum við í gegnum öll skipulögð spil og göngum úr skugga um að spilið verði með í för!